Site menu:


Fuglalíf

Strendur og grunnsævi Vesturlands draga að sér mikinn fjölda sjófugla og vaðfugla, sem setja sterkan svip á fuglalíf landshlutans.

Af 75 íslenskum fuglategundum verpa um 60 árlega á Vesturlandi. Að auki fara fimm tegundir svokallaðra fargesta um svæðið í þúsundatali að vori og hausti á leið sinni til og frá varpstöðvum á Grænlandi og Kanada.

Haförninn má sjá um allt Vesturland en aðalheimkynni hans eins og dílaskarfs og toppskarfs eru við Breiðafjörð. Á meðal annarra athyglisverðra tegunda má nefna brandönd og blesgæs í Borgarfirði, flórgoða og skeiðönd í Staðarsveit og bjargfugla og kríu á utanverðu Snæfellsnesi. Í sjóferð frá Stykkishólmi má komast í návígi við marga af sjófuglunum.