Site menu:


Eldborg

Eldborg í Hnappadal er gjallgígur, 38 km fyrir norðan Borgarnes. Gígurinn rís 100 m yfir sjávarmáli en 60 m yfir hrauninu í kring og er stærstur gíga í stuttri gossprungu. Gígurinn er formfagur, sporöskjulaga eldgígur með bröttum gígveggjum mynduðum úr þunnum hraunskánum, um 200 m að lengd og 50 m á dýpt. Þar hafa orðið tvö gos, það síðara sennilega á landnámsöld. Eldborgarhraun er kjarri vaxið og var skógurinn mikið höggvinn áður fyrr. Eldborg var friðlýst 1974. Hægt er að ganga upp á gígbarminn og ganga eftir honum allan hringinn.

Staður: 38 km fyrir norðan Borgarnes. Gönguleið á Eldborg frá Snorrastöðum.